Könnun
Hver var besti leikmaður HF í sumar?




26.07.2009 14:04:11 / kfkeli

Loksins

Eftir þriggja ára spekúleringar tók Hrafnkell Freysgoði þátt í Launaflsbikarnum 2009. Samt sem áður var þetta alger skyndiákvörðun og liðið var skráð á síðustu stundu í utandeildina. 
    Við, Breiðdælingar, fengum leikmenn úr ýmsum nágrannaríkjum en kjarni liðsins byggðist á Breiðdælingum og Djúpavogsbúum.
    Arnþór Ingi Hermannsson var og er knattspyrnustjórinn og hans hægri hönd er Natan frá Djúpavogi. Natan er alltaf í boltanum...    

    Við höfum lokið keppni í bikarnum eftir frekar niðurlægjandi tap gegn Borgfirðingum í 8 liða úrslitunum. Síðasti leikur okkar, í riðlakeppninni, var á Staðarborgarvelli og var það fyrsti leikurinn sem þar hefur verið spilaður í fjölda ára. Liðið hafnaði í 3. sæti A-riðils með 5 stig eftir 6 leiki.

Tölfræði sumarsins.


1. umferð
Hrafnkell F 2-2 06.apríl ;)

2. umferð
Hrafnkell F 4-6 BN´96  :(

3. umferð
SE 2-2 Hrafnkell F  :^) :^) :^) :^) :^)

4. umferð
06.apríl 0-3 Hrafnkell F (úrskurður) :haha:

5. umferð
BN´96 5-1 Hrafnkell F :(

6. umferð
Hrafnkell F 2-4 SE :^) :^) :^)

8 liða úrslit

UMFB 13-1 Hrafnkell F :haha: 

Liðið lék oft á tíðum mjög vel og margir leikir þarna sem við hefðum getað unnið. Liðið okkar er sterkt en þegar okkar bestu menn komast ekki í leiki hefur gengið illa að fylla upp í skörðin. Þetta var skemmtilegt sumar og á næsta ári verður farið í þetta af alvöru, keyptir búningar o.s.frv. Við hendum inn tölum um markahæstu menn og fleira síðar... Við þökkum öðrum liðum fyrir skemmtilegt mót. Við sjáumst að ári.

» 18 hafa sagt sína skoðun

14.01.2007 01:43:38 / kfkeli

Leikmenn!

Jæja, þá þurfum við kannski að fara að fá á hreint hverjir ætla sér í raun að vera með næsta sumar og biðjum við þá sem eru alveg 100% á því að kommenta hér að neðan. Þetta verður að vera allt á hreinu til að við sjáum hvort þáttakan næsta sumar sé örugglega ekki raunhæfur möguleiki!

» 65 hafa sagt sína skoðun

24.12.2006 18:12:39 / kfkeli

Gleðileg Jól

Kf. Hrafnkell Freysgoði óskar öllum liðsmönnum sínum, sem og öllum austfirðingum gleðilegra jóla, og farsældar á komandi ári! Gleðileg Jól :)

» 26 hafa sagt sína skoðun

19.12.2006 11:55:19 / kfkeli

Viðvörun til annara liða!

Undanfarið hafa verið þreifingar hjá forráðamönnum Vetrarbruna á Djúpavogi til að næla í einn af okkar lykilmönnum, hann Arnþór Inga Hermannsson, Þess ber að geta að leikmaðurinn er EKKI til sölu, og vörum við önnur lið við því að reyna að kaupa sálir hinna ungu breiðdælsku leikmanna.

Þar sem að nú er ljóst að Vetrarbruni ,sem að kemur frá nágrannabæ okkar Djúpavogi, ætlar að vera með, teljast þeir einir af okkar erkifjendum og bjóða komandi viðureignir við þá upp á mikla skemmtun á næsta tímabili. Og óskar Hrafnkell Freysgoði nágrönum sínum til hamingju með framtakið.

En látið okkar leikmenn í friði!

» 28 hafa sagt sína skoðun

15.12.2006 19:43:41 / kfkeli

hann á afmæli í dag!!

já hann Birgir Jónson einn liðsmaður liðsins á afmæli í dag og er hann orðinn 22 ára gamall.. við óskum honum til hamingju með daginn...

» 18 hafa sagt sína skoðun

13.12.2006 10:43:12 / kfkeli

Hann á afmæli í dag!

Þá er komið að enn einu afmælinu hjá liðsmanni, en það er Arnþór Ingi sem er 18 ára í dag og óskum við honum innilega til hamingju með það að vera orðinn sjálfráða. Á næstu dögum er einnig væntanleg inn ný hin hlið og vonandi fréttir af stöðu mála sem skýrist vonandi um jólin.

» 27 hafa sagt sína skoðun

04.12.2006 15:06:20 / kfkeli

Hann á afmæli í dag!

Hann Guðmundur Rúnar Einarsson, er 16 ára í dag. Og óskum við honum til hamingju með daginn!  Til hamingju með daginn, Gummi!

Og svo allir að kommenta og óska honum til hamingju! :)


» 31 hafa sagt sína skoðun

01.12.2006 23:06:24 / kfkeli

Hensonbréf

Hérna er sem sagt pósturinn frá Henson, þetta þarf bara að ræða þetta
við tækifæri, sennilega um jólin og gaman væri að fá komment á þetta
hvað mönnum finnst og svo er hægt að prenta nafn aftan á líka, það
kostar 400 og eitthvað pr. búning
Ég hef ánægju að upplýsa um verð á 
keppnisbúningum.  Ég geri ráð fyrir því að þú sért að tala um búninga á 
eitt lið. Keppnispeysa getur kostað kr.1975,stuttbuxur 1360 og sokkar 
580. Ofan á þetta bætist félagsmerki kr.360,stórt númer kr.336 pr.númer 
(10,11,12 telst tvöfalt) Auglýsing er líkleg til að kosta kr.8800 fyrir 
allt settið upp í 25 búninga miðað við að prentunin sé í einum lit. Við 
getum ef til kemur framleitt búningana fyrir ykkur samkvæmt ykkar 
hugmyndum t.d. eins og síðasti búningur félagsins var eða eins og sá 
fyrsti. Við eigum endalaus mismunandi efni í keppnisbúninga en auk þess 
magnaða prenttækni
þannig að við getum prentað alla hönnun, félagsmerki,auglýsingar og 
númer í einni umferð, algjörlega eftir ykkar eða okkar hugmyndum. Eg þið 
eigið góðan hönnuð getur hann algjörlega stýrt útlitinu. Afgreiðsla í 
öllum tilfellum, nokkrir dagar.
Ég hlakka til að upplýsa ykkur betur ef óskað.
Kveðja
Halldór Einarsson/Henson hf

Þetta kom eitthvað asnalega út þarna fyrir ofan, en nenni ekki að vesenast í að reyna að breyta því, þannig að endilega kommentið á þetta


» 21 hafa sagt sína skoðun

01.12.2006 23:03:41 / kfkeli

Pæling um búninga

Sælir!

Við höfum verið að pæla í búningum eins og allir vita, og ákváðum við hérna fyrir sunnan að tala við Henson og fá tilboð í búninga og merkingar á þá og allan pakkann, til að tékka þetta svona, en við verðum svo bara að ræða það. Það er hægt að fá nr á búningana, auglýsingar og nöfn og alles, þannig að þetta hljómar mjög spennandi, hendi kannski póstinum frá Henson hérna inn í annarri færslu því að það er ekki hægt að pasta í firefox.

» 17 hafa sagt sína skoðun

30.11.2006 12:55:46 / kfkeli

Ný hin hlið!

Þá er kominn inn ný hin hlið. Það er hinn knái framherji Hrafnkels, Arnór Ari Sigurðsson, sem tjáir sig.

» 23 hafa sagt sína skoðun

22.11.2006 12:01:08 / kfkeli

ný hin hlið

Jæja, þá er loksins komin ný hin hlið inn. Í þetta sinn er það einn af "útlendingunum" í hópnum sem sýnir á sér hina hliðina, en það er hinn vaski Álftfirðingur Eiríkur Guðmundsson starfsmaður Tréiðjunnar Einis í Fellabæ. Margt fróðlegt sem kemur fram þar, t.d. er hann greinilega gríðarlega öflugur í eldhúsinu, eins og ég hef sjálfur kynnst. Í lokin vil ég skora á fréttaritarana fyrir austan að skrifa um knattspyrnuiðkun þeirra austan heiða, því ég veit að knattspyrna er stunduð í íþróttahúsinu á Breiðdalsvík alla vega um helgar.

» 18 hafa sagt sína skoðun

13.11.2006 23:34:12 / kfkeli

Nýtt í hin hliðin

Jæja, nú er komin ný hin hlið. Í þetta sinn er það Arnþór Ingi eða Addi sem sýnir á sér hina hliðina. Einnig má benda á að eldri hinar hliðar fara undir hlekkinn eldri hinar hliðar hérna vinstra megin. Einnig kominn nýir leikmenn og allt að gerast. Það fer að komast skriður á málin fljótlega, og stefnt er á fund um málin í jólafríinu þegar flestir þeir sem stefna á þetta ævintýri verða á sama stað.

» 27 hafa sagt sína skoðun

08.11.2006 23:31:02 / kfkeli

Hin hliðin komin inn

Jæja, þá er hin hliðin komin inn og fyrstur til að sýna á sér hina hliðina er stofnandi síðunnar Sigurður Borgar Arnaldsson. Margt fróðlegt sem þar kemur fram, en síðan kemur einn af öðrum með einhverju millibili, en þá verða hinar settar á nýjan link. Kannski verður ein ný á viku eða svo.


» 24 hafa sagt sína skoðun

04.11.2006 18:12:08 / kfkeli

Hin hliðin

Nú fer að koma hér inn nýr liður á síðuna, sem verður reyndar að viðurkennast að er eiginlega stolinn frá fotbolti.net. En það er hin hliðin og geta lesendur því á næstu vikum kynnst hinni hliðinni á leikmönnum liðsins. Linkur á þetta verður hérna til vinstri þegar sá fyrsti hefur samþykkt að sýna á sér hina hliðina.

» 16 hafa sagt sína skoðun

24.10.2006 20:38:17 / kfkeli

Fréttir að austan.

Júhú.

Við strákarnir hér fyrir austan höfum alls ekki verið að standa okkur í blogginu en ástæðan er sú að við höfum verið djúpt sokknir í lærdóm hér í ME. :)

Nú styttist í sumarið og þarf maður því að fara að huga að því að koma sér í form. Nokkrir okkar eru reyndar þegar byrjaðir að fara í ræktina á hverjum degi og lyfta undir leiðsögn Styrmis MegaMassa. En planið er að taka strangt æfingarplan eftir áramót og hætta allri öldrykkju eða að minnsta kosti minnka hana til munar. Við spilum auðvitað bolta hér í ME tvisvar í viku og auðvitað heima líka um helgar. Okkur hefur verið boðið að kíkja á æfingar með Völsurunum á Reyðarfirði í höllinni á föstudögum kl 19.00.  Um að gera að nýta sér það því það er geðveikt að spila þarna. Það kostar 300 kall inn á æfinguna sem er ekki neitt. so.. show up. Annars er ekkert meira að frétta held ég og því segi ég þetta gott í bili.

Ps. komnir fleiri Leikmenn. :D


» 27 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Klukkan
Heimsóknir
Í dag:  43  Alls: 29330